Prump samtímans

fimmtudagur, desember 16, 2004

Ný vefsíða

Jæja, þá er komin kveðjustund á blogspot.com ég hef ákveðið að flytja á blog.central.is/prumpa af þeim ástæðum að það virðist vera mun auðveldara í notkun og þæginlegra, og ekki slæmt að allt sé á íslensku, svo mútta geti skilið síðuna mína :)

Svo bottomline---drullið ykkur á nýju síðuna mína og gerið ykkur sýnileg!!

|

þriðjudagur, desember 14, 2004

Úrslit í myndaþrautinni

Úrslit úr myndaþrautinni eru komin í hús. Það var kosið um hvers konar fyrirbæri þetta var á myndinni hér að neðan. Valmöguleikarnir voru; kona, karl eða finni. Þrettán manns tóku þátt þar sem 46% voru sannfærð um að þetta væri finni, 31% að þetta væri karl, og 23% að þetta væri kona.

Ég þakka öllum 13 sem tóku þátt, þótt mig grunar að meirihlutinn hafi verið útlendingar sem ýttu á next hnappinn sem er í boði blogspot!

|

Stúfur

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönn,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


|

mánudagur, desember 13, 2004

Giljagaur

Giljagaur var annar,
með grá hausinn sinn.
-Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal


Þessi er með þeim saklausu, honum fannst einstaklega gott að gæða sér á froðunni af nýmjólkaðri mjólk.

|

sunnudagur, desember 12, 2004

Stekkjastaur

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

Fyrir ykkur sem ekki náðuð pointinu, þá er Stekkjastaur ekki bara með staurfót eins og við kennum börnunum í dag, heldur fannst honum afskaplega gott að sjúga ærnar...


|

Perrar jólanna

Íslensku jólasveinarnir eru að mínu mati einstaklega sértækir. Í fyrsta lagi eru þeir 13. Þeir eru komnir af tröllum og eiga kisu að gæludýri sem er vægast sagt mislynd. Hlutverk hvers og eins er hálf perralegt, og í dag myndum við fangelsa suma fyrir þeirra hegðun. En næstu 13 daga ætla ég að gera smá úttekt á hverjum svein fyrir sig.

|

föstudagur, desember 10, 2004

Dónar og mannúrhrök!!

Hver ól ykkur upp!! Það er vaninn að kvitta fyrir komu sinni hér á þessum bæ, vinsamlegast skrifa í gestabókina takk!!

Annars kemur jólakötturinn og bítur ykkur í rassinn.

|

mánudagur, desember 06, 2004

Hvað í ósköpunum er þetta, kjóstu hér til hliðar!





|

föstudagur, desember 03, 2004

Stórbrjósta gáfumenni

Anna Nicole Smith hefur löngum kvartað yfir því að hún sé ekki tekin alvarlega. Heldur er einblínt á brjósta, maga og rassstærð hennar ásamt ljósu lokkunum. Því hefur hún tekið upp á því í skyni alvarleika síns að strippa á öllum þeim hátíðum sem hún tekur þátt í. Enda vita það allir að ef þú vilt að einhver taki þig alvarlega, þá er nakin mótmælaganga leiðin til árangurs!!
Skyldi hún vera forkona blondínufélagsins í Ungverjalandi?? Maður bara spyr sig...

|